MD Vesturland

Drag Hunda Hlaup

Skráning er til Laugardagsins 22 April 2023

 

Þar sem Musher og hundar vinna saman með bros á vör


Sponsar fyrir MD Vesturlands 2023 eru.

https://www.laxarbakki.is

https://www.skridhusky.com

https://tilveranrestaurant.is

https://www.olis.is

 


       Program fyrir MD Vesturland 2023

Laugardaginn 6 may 2023

10,00: Opnað Hlaupið Farið yfir búnað keppenda

10,30: Musherfundur farið yfir reglur,Leiðir og dregið í start.

12,00 MDD6 Startar hjá Ferstikluskála

13,00 MDD4 Startar Hjá Laxárbakka

13,30 MDD2 Startar Hjá Laxárbakka

14,00 -16,00 Teymi koma í mark 

17,30 UNGL keppir

19,00-2100 Matur á Laxárbakka þar sem Laxárbakki bíður öllum sem skrá sig í matinn í gegnum hlaupið 15% afslátt af matnum og er þettað líka fyrir þá sem eru að koma til að fylgjast með hlaupinu og eru gestir

Skráningarhnappur er fyrir neðann :)

Munið að senda inn Nafn og símanúmer þegar skráð er í matinn og setja fyrirsögnina Matur

 

Sunnudagur 7 May 2023

10,30 Start 2 MDD6 hjá Ferstikluskála

11,30 Start 2 MDD4 á Laxárbakka

12,00 Start 2 MDD2 á Laxárbakka

15,00 áætlað að síðustu teymi komi í mark

16,00 Barnaflokkur keppir

17,00 Verðlaunarafhending og loka hlaupi.

 

Helgina 6-7 may 2023


MD Vesturland verður helgina 6-7 May 2023

Og verður það Mid Distance Dryland hlaup Með Skammstöfun MDD 

Í Hlaupinu eru 5 flokkar


MDD 6 Er flokkur þar 4-6 hundar draga vagn með 3 eða 4 hjólum undir meiga vera vélarlaus fjórhjól þríhjól eða vagnar með 4 hjólum.

Lengd 2x 25 km

 


MDD 4 Er flokkur þar sem 3-4 hundar draga Scooter sem er hannaður fyrir þettað sport eða keðjulaus reiðhjól.

Lengd 2x15 km


MDD 2 Er flokkur þar sem 1-2 hundar draga reiðhjól

Lengt 2x15 km


UNGF er flokkur fyrir Unglinga 13-17 ára með 1 hund sem dregur reiðhjól

Lengd 5 km


BARNF er flokkur fyrir börn 8-12 ára með 1 hund sem dregur reiðhjól 

Lengt tæpir 300 M


MD Vesturland Auglýsir eftir Sjálfboðaliðum sem vilja vera með okkur að hjálpa til í braut og fleira.

Note: Please fill out the fields marked with an asterisk.



Keppendur í MDd 6

 


 Askur Bárðdal Laufeyjarson 

Keppendur í MDD2


Gísli Dan Gíslasom 

Við erum að taka þátt í fyrstu keppninni okkar.

Heyrði af þessu hjá Hundaskeðaskólanum og ákvað að prófa

Stefnum á að taka þátt í 2 keppnum í viðbót hjá goHusky eða sleðahundaklúbbinum 

Mér finnst útiveran með Baldri og Freyju það besta við þetta sport og ekki skemmir hvað þeim finnst þetta gaman


Hafrún Sigurðardóttir

Ég hef einusinni keppt áður og það var síðast haust. Þá keppti ég með Tinnu risaschnauzer í 5 km bikejouring og höfnuðum við í 2. sæti 😊

Til að prufa lengri vegalengdir og reyna enn meira á okkur. Það verður áskorun að fara 15 km tvo daga í röð. Það er líka alltaf gaman að hitta annað folk sem hefur sömu áhugamál og maður sjálfur. 

Eg veit það ekki alveg en ég mun reyna taka þátt í öllu sem ég get. Ástand hundanna og mitt ræður mestu þar. 

Það er allt skemmtilegt við sportið, adrenalín kikkið sem maður fær þegar maður tekur af stað og gleði tilfinningin þegar maður kemur í mark. Hundunum mínum finnst þetta líka geggjað! Það jafnast ekkert á við það að vera með öfluga vinnuhunda sem fá útrás fyrir vinnueðlið sitt á jafn skemmtilegan hátt og bikejouring er. 


Erna Sofie Árnadóttir
 Ég hef keppt síðan 2012 minnir mig 
Úff ég á 2 silfurpeninga frá draghundasport, fékk betra sein en aldrei í krýsuvíkurhlaupinu 🙈
4 brons og 1 silfur frá gohusky, hef lent líka í 7.sæti þar og 4 eða 5.
2 brons og 2 silfur frá sleðahundaklúbbnum og lenti í síðasta sæti með Skaða í fyrra. 
3 sæti icehusky. 2 bikarar hjá sleðahundaklúbbnum. 1 bikar draghundasport. Þetta er frá skijoring, sleða, bikejoring, scooter og þríþraut.
Vegna þess að mér finnst gaman að keppa og ég keppti í gamla hvalfjarðarsveitarhlaupinu á sínum tíma og fannst það alveg frábærar keppnir :)
 Mdd2, miðnæturmót gohusky og íslandsmeistaramót sleðahundaklúbbsins
Allt bara! Hundarnir eru hetjurnar og svo skemmir ekki félagsskapurinn 

Davíð Magnússon

já hef keppt í nokkrum kepnum s.l. ár. 
síðast var það sitthvort íslandsmeistaramót hja sleðahundaklúbbnum á mývatni og í haust.
strákarnir unnu sínar 2ja hunda greinar á hjoli og scooter.

gamann að prufa eitthvað nýtt :)

öll sem er í boði.

að hreyfa sig með hundanna, geggjað gamann að taka á því með þeim.


Gunnar Eyfjörð Ómarsson
Ég hef tekið þátt í flestum þeim keppnum sem eru á hverju ári, síðan
2012.
Suðurlandshlaupið 2012 er fyrsta keppnin mín og þar vann ég 8 km.
scooter með tvo hunda.
Síðan þá hef ég tekið þátt í canicross, scooter, bikejöring, skijöring
og sleða keppnum, hjá Draghundasport, EldurÍs, Icehusky,
Sleðahundaklúbbnum og goHusky og hef lent í öllum sætum, frá fyrsta til
síðasta 😉

Ég hef gaman af því að taka þátt og vera í útivist með hundunum mínum.

Þau sem verða haldin

Samveran með hundunum, sjá hvort við sem lið höfum gaman og náum að
vinna með það sem lagt var upp með.
Mismunandi hundar eru á mismunandi stað í þroska og kunnáttu og við erum
alltaf að skoða hvað við ráðum við hverju sinni.


María Björk Guðmundsdóttir

Já, hef keppt síðan 2012. Hef tekið þátt í Suðurlandshlaupinu 2012, Hvalfjarðarsveitarhlaupinu 2014, Krýsuvíkurhlaupum hjá Eldur&Ís, flestum vetrar- og haustmótum Sleðahundaklúbbsins síðan 2013 og goHuskymótinu síðustu 7 ár. Hef mjög oft lent í verðlaunasætum og er íslandsmeistari í nokkrum greinum.

Það er alltaf gaman að taka þátt í keppni og alltaf frábært að hitta þennan skemmtilega hóp sem tekur þátt í þessu sporti. Ég reyni alltaf að taka þátt í flestum keppnum ef ég get. Ég veit að þessi braut er krefjandi en skemmtileg.

Ég hef þegar keppt á Íslandsmeistaramóti Sleðahundaklúbbsins í mars, tek þátt í þessu hlaupi og mun taka þátt í goHusky mótinu og vonandi í Haustmóti Sleðahundaklúbbsins.

Hvað er ekki skemmtilegt?! Hreyfingin, útiveran, samveran og tengingin við hundana, keppnisskapið, félagsskapurinn og fleira og fleira. Bara gaman.

Keppendur í UNGL


Jökull Páll Birgisson

Hundur: Úlfa


Beníta Líf Palladóttir

Hundur: Snær