MDD2

Er startað frá Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit og kemur í Mark 15 km seinna á Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit

Hér er skráningarferli fyrir MDD2 flokkinn

Með því að ýta á skráningarhnappinn hér fyrir neðan opnast email og þar þarf að senda ínn skráningu.

Skráning er opin til 22 April 2023

Skrá þarf

Heiti á flokki

MDD2:

Nafn:

Kt:

Heimilsfang:

síma:

netfang:

Hund 1:

Hund 2:

Og nokkrar spurningar til gamans til að setja með til kynningar á keppanda :)

OG væri gaman að fá mynd a af þér með hundum sem má birta :)

Hefur þú kept áður?

Ef það er já Þá í hvaða keppnum og hvaða sæti.

Hvers vegna velur þú að keppa í MD Vesturlandshlaupinu?

Hvaða hlaup eru áætluð að keppa í yfir árið?

Hvað er skemtilegast við sportið?

Keppnisgjald er 4000 kr og er lagt inn á reikn:

0186-26-010489

KT: 1601683159

KEPPNIS REGLUR! fyrir MDD2
Hámark fjöldi hunda í starti 2
Lágmarks fjöldi hunda í starti 1
Allir keppendur keppa á eigin forsendum og tryggingum.
Allir keppendur verða að passa hundana sína a mótsvæði og meðan á keppni stendur.
Öll lausaganga hunda er stranglega bönnuð á keppnissvæði.
Tíkur sem eru að lóða á keppnissvæði eru algjörlega á ábyrgð eiganda.
Eigendum ber að þrífa upp eftir hundana sína á keppnissvæði.
Keppendur í braut þurfa ekki að stoppa til að þrífa upp eftir hundana sína.
Allir hundaeigendur skulu sýna heilsufarsbækur.
Allir hundar verða að vera bólusettir og ormahreinsaðir.
Þegar farið er fram úr teymi er sagt hátt og skýrt TRAIL .
Sá sem verið er að fara framúr er skyldugur til að víkja samstundis og hleypa framúr sér.
Ef brotið er á þessari reglu eru 5.mín refsistig,
Hjálmur er skylda í öllum flokkum og engum hleypt í Start án hjálms!
MDD2
1-2 hunda flokkur og er keppt á Reiðhjóli 
Lágmark aldur hunda er 18 mánaðar.
Musher(keppandi) á að vera með dalla og vatn með sér  og má stoppa í braut ef þarf til að brynna hundum sínum.
Startað er með 2.mín millibili.
Og er Startað í þessum flokki á Laxárbakka Hvalfjarðarsveit báða dagana.
Sá keppandi sem verður með besta tímann í fyrri legg Startar fyrstur daginn eftir.
Þegar búið er að hlaupa báða dagana er heildartíminn tekinn samann og er sigurvegarinn sá aðili sem hefur besta heildartíma.
Hundum í MDD2 má raða á línu svona.
2 saman
1 Leiðir,1 Wheel
 
Aftari hundur þarf að vera tengdur með hálstaum við miðlínu. Fyrri hundur leiðari þarf ekki hálstaum
2 saman  verða að hafa hálstaum á milli sín.
Musher má færa til hunda á línu að vild.
Skyldu búnaður eru.
1: Hjálmur
2: Að Bremsur á hjóli virki
3: Vatnsdalla fyrir hvern hund
4: minnst hálfan líter af vatni á hund = 1 lítrer lágmark
Stranglega bannað er að berja hunda áfram eða nota einhverskonar svipu eða spotta til að fá hunda áfram.
Bannað er að draga hunda á eftir Reiðhjóli.
Hundur sem tekinn er úr teymi er hann hættur keppni.
Í þessum flokki má keppa með 1 hund fyrridaginn og 2 hunda seinni daginn og öfugt
Hundar sem eru skráðir í MDD2 mega ekki keppa í öðrum flokkum.